Heil og sæl, Við erum að leita til ykkar því að í Ártúnsskóla eru tvö systkini sem eru í 2. og 4.b sem eru nýkomin til landsins og eiga engan vetrar- og hlífðarfatnað. Bestu kveðjur, Ellen skólastjóri
Góðan dag, Hafið þið tök á að styrkja einstæða móður sem er öryrki um greiðslu á mataráskrift fyrir 2 börn hennar. Upphæðin fyrir þessi tvö börn er um 19.000 kr. á mánuði. Bestu kveðjur, Rósa Ingvarsdóttir – Skólastjóri
Óskum eftir styrk fyrir 4 börn til að fara á Laugavatn í skólabúðir. kv, Ásta Bjarney
Óskað er eftir aðstoð til að greiða fæði og frístund fyrir flóttabarn í 1. bekk í Varmárskóla. kv, Jóna Benediktsdóttir
Heil og sæl Sendi fyrirspurn í byrjun desember varðandi greiðslur á mötuneyti fyrir tvö systkini. Þetta eru sýrlensk systkini og foreldrar eru bæði ótalandi á íslensku og ekki komin með vinnu. Þau hafa miklar áhyggjur af kostnaði við mötuneytið, þar sem börnin eru skráð í mötuneytið og hafa borðað í…
Góðan dag, Við erum að sækja um styrk vegna ferðar 7.b í skólabúðirnar á Reykjum. Ferðin er 16.-20. janúar og kostnaður er 30.þúsund, Kær kveðja, Sissa
Sæll Jón Trausti, Það er vorferð með 10. bekk hér í Vogaskóla. Drengur hér í skólanum sem býr við erfiðar fjárhagslegar aðstæður, kemst ekki í ferðina nema með styrk. Hann er búinn að vera mjög duglegur að safna í sameiginlegan sjóð en það vantar 10. 500 kr. upp á að…
Sæl Jón Trausti og ágætu stjórnarmeðlimir í Hróa hetti, Í framhaldi af símtali okkar nú rétt áðan ber ég fram beiðni um aðstoð fyrir nemendur í 8. bekk. Í öllum tilfellunum sem ég er með í huga er um tvíbura að ræða. Í mars eru fermingar, skíðaferðalag (einn dagur) og árshátíð nemenda…
Sæll Hrói, Ég er með stelpu í félagsmiðstöðinni hjá mér sem langar svo að fara á SamFestinginn ( Samfés hátíð ) sem er ball og söngkeppni allra félagsmiðstöðva á landinu, haldið í Laugardalshöll helgina 13.-14.mars. Það kostar 4500 kr per ungling ( því miður ekki tala sem við stjórnum )….
Sæll kæri Hrói höttur, Nú spyrjumst við fyrir um aðstoð vegna 9 ára gamallar kínverskar stúlku sem er nemandi hér í skólanum okkar. Hún kom til landsins í apríl til móður og stjúpa. Stuttu eftir komuna lést stjúpinn og nú býr móðir hennar með hana inni á systur sinni. Hvað…