Öll vinna á vegum HHB er unnin af sjálfboðaliðum
Tilgangur félagsins er að veita íslenskum grunnskólabörnum stuðning og aðstoða þau sem líða skort
Markmið HHB er að stuðla að því að grunnþarfir og nauðsynjar séu uppfylltar í grunnskólum
Við viljum alls ekki vita hvaða börn hljóta aðstoð félagsins, bara hvernig við getum hjálpað þeim
Það er oft starfsfólk grunnskólana sem eru í bestri aðstöðu til að sjá hvaða börn þurfa á aðstoð Hróa Hattar að halda
Hrói Höttur Barnavinafélag eru félagasamtök venjulegs fólks sem er umhugað um velferð grunnskólabarna. Félag var stofnað í janúar 2011 og hefur það að markmiði að styðja fjárhagslega við bakið þeim grunnskólabörnum sem líða skort á einhvern hátt og hafa ekki sömu lífsgæði og bekkjasystkyni þeirra.
Við erum EKKI stórt félag. Við komum EKKI í staðin fyrir einhver önnur úrræði á vegum ríkis eða skóla. Við sækjumst ekki eftir upplýsingum um hvaða börn hljóta aðstoð félagsins. Starfsfólk félagsins fá EKKI greitt fyrir sitt vinnuframlag. Við sættum okkur EKKI við að börn á Íslandi séu afskipt, og njóti ekki sömu lífsgæða og aðbúnaðar og þeirra bekkjafélagar.
Sum skólabörn mæta aldrei með nesti í skólann, sum fá ekki afgreiðslu í skólamötuneytinu því reikningarnir hafa ekki greiddir. Sum börn eiga ekki úlpu, vettlinga, kuldaskó eða jafnvel skólabækur. Sum börn fá ekki að vera í heilsdagsskóla.
Ef þú vinnur í grunnskóla, þá getur þú gert góðverk með því að fylgjast með og láta okkur vita næst þegar þú sérð barn sem líður einhvern skort! Ef þú ert bara vel hugsandi Íslendingur, þá getur þú hjálpað okkur að með fjárframlögum.
Við erum þakklát fyrir hjartahlýjar kveðjur og þakkir sem við fáum reglulega
“Kynning ykkar í Rimaskóla á sama tíma fyrir ári risti djúpt í hugum okkar sem störfum í grunnskóla, þá í nálægð jólanna. Ekki flókin hugmynd, einlæg og sannfærandi. Skólinn fékk síðan fljóta og góða afgreiðslu þegar á reyndi enda treysti ég skólum til að reyna á ykkar hjálp af sanngirni
Skólastjóri Rimaskóla
“Nemendur okkar hafa átt hauk í horni þar sem þið eruð. Um leið og við þökkum þann stuðning vonumst við til áframhaldandi góðu samstarfi. Með bestu kveðjum, Hreiðar Sigtryggsson
Skólastjóri Langholtsskóla
“„Ég er kennari í grunnskóla í Kópavogi, ég var að láta nemanda minn fá númer frá Skólamat því þið borguðuð áskriftina fyrir hana.
Hún brosti allan hringinn, ljómaði öll, hún var svo glöð að fá númer til að stimpla inn eins og hinir krakkarnir. Ég hef verið að sækja mat fyrir hana í hádeginu því hún var svo stressuð yfir að vera ekki í áskrift. Við skrifum númerið á úlnliðinn á þeim á meðan þau eru að læra það og hún hefur verið að laumast til að kíkja á númerið sitt í allann morgun.
Þúsund þakkir fyrir að hjálpa þessari ljúfu og góðu stelpu, takk! „
Kennari í ónefndum grunnsklóla í Kópavogi
Þetta eru vinir Hróa Hattar og hjálpa félaginu með ýmsu móti - Takk fyrir hjálpina!
Kt: 490311-0250
Bíldshöfði 14, 110 Reykjavík
GSM: 821-3790 ( Jón Trausti )
Netfang: hhb@hhb.is
Bakhjarlar HHB eru ýmisir aðilar, fyrirtæki og einstaklingar sem leggja þessu góða málefni lið.
Við teljum að best að þau börn sem þurfa á aðstoð okkar að halda fái hana "hljóðlega" þ.e. án þess að aðrir en foreldrar verði þess vör.
Takk kærlega fyrir að hjálpa okkur við að hjálpa börnunum okkar allra!
Þú getur lagt okkur lið með millifærslu á bankareikning HHB:
Banki: 0515-26-250000
Kt: 490311-0250
PÓSTUR 1 - "Hjá okkur er drengur í 9. bekk og vantar góða skó. Einstæð móðir hans hefur engin ráð til að kaupa fyrir hann skó. Getið þið hjálpað honum?
PÓSTUR 2 - "Drengurinn er nú kominn með góða kuldaskó og er mjög þakklátur, ég skila því hér með til ykkar. Kær kveðja, ónafngreindur Skólastjóri."