Fréttir

Félagasamtökin Agora 6 styrkja HHB um 100.000 kr.

By maí 14, 2026No Comments

Félagasamtökin Agora 6 í Reykjanesbæ hafa styrkt Barnavinafélagið Hróa Hött um 100.000 kr.

Ákvörðun Agora 6 um að styðja við starf félagsins var tekin vegna þess mikilvæga og góða starfs sem Hrói Höttur vinnur fyrir grunnskólabörn á Íslandi. Hrói Höttur veitir börnum sem búa við skort stuðning og aðstoð og hefur jákvæð áhrif á líf margra barna og fjölskyldna þeirra.

Við þökkum Agora 6 kærlega fyrir stuðninginn!

Með þökkum,
Hrói Höttur Barnavinafélag