Sæll kæri Hrói höttur,
Nú spyrjumst við fyrir um aðstoð vegna 9 ára gamallar kínverskar stúlku sem er nemandi hér í skólanum okkar.
Hún kom til landsins í apríl til móður og stjúpa. Stuttu eftir komuna lést stjúpinn og nú býr móðir hennar með hana inni á systur sinni.
Hvað varðar réttindi þá er móðir ekki enn komin inn í kerfið hér með meðlag og þess háttar.
Stúlkan þarf nauðsynlega að komast í frístundaheimilið en það er ekki til peningur fyrir þeirri vist. Í fyrra var kostnaður um það bil 16.000 krónur á mánuði.
Getur Hrói höttur styrkt þetta?
Kveðja, Guðlaug deildarstjóri unglingadeildar